Varðveisla fjarskiptaupplýsinga 2006/24/EB
(1203107)
Utanríkismálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
05.05.2014 | 48. fundur utanríkismálanefndar | Varðveisla fjarskiptaupplýsinga 2006/24/EB Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um tilskipun 2006/24/EB um varðveislu fjarskiptaupplýsinga (gagnageymd). Til grundvallar umfjöllunar nefndarinnar lá forúrskurður Evrópudómstólsins í sameinuðum málum C‑293/12 and C‑594/12, frá 8. apríl 2014, er varðar lögmæti tilskipunar 2006/24 um geymslu fjarskiptaupplýsinga (gagnageymd). |
06.12.2013 | 14. fundur utanríkismálanefndar | Varðveisla fjarskiptaupplýsinga 2006/24/EB Á fund nefndarinnar komu Þórður Sveinsson og Hörður Helgi Helgason frá Persónuvernd. Gerðu þeir grein fyrir sjónarmiðum til fyrirhugaðrar upptöku tilskipunar 2006/24/EB um varðveislu fjarskiptaupplýsinga / gagnageymd í EES-samninginn og svörðu spurningum nefndarmanna. |
26.11.2013 | 12. fundur utanríkismálanefndar | Varðveisla fjarskiptaupplýsinga 2006/24/EB Umfjöllun um dagskrárliðinn var frestað. |
08.10.2013 | 1. fundur utanríkismálanefndar | Varðveisla fjarskiptaupplýsinga 2006/24/EB - Ísland/Noregur Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um upptöku tilskipunar 2006/24 um gagnageymd (geymslu fjarskiptaupplýsinga) í EES-samninginn. Á fund nefndarinnar komu Bryndís Kjartansdóttir frá utanríkisráðuneyti og Sigurbergur Björnsson frá innanríkisráðuneyti. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Til grundvallar umfjöllunar málsins voru eftirtalin gögn: a) Bréf utanríkismálanefndar til utanríkisráðherra dags. 20. febrúar 2012. Bréfi nefndarinnar fylgdi minnisblað um umfjöllun nefndarinnar ásamt fylgiskjölum (17 bls.). b) Bréf ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins til formanns utanríkismálanefndar, dags. 12. september 2013. |